<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><framtidarsyn>
	<setning id="9514">Ísland verði umhverfisvænt og sjálfbært með réttláta og heiðarlega stjórnsýslu. Að allir hafi tækifæri til að nema og starfa eftir áhuga og getu.</setning>
	<setning id="9467">Þjóðfélag sem byggir á réttlæti, jafnrétti og sjálfbærri nýtingu auðlinda og hefur að leiðarljósi öflugt, skilvirkt og réttlátt mennta- og heilbrigðiskerfi</setning>
	<setning id="9407">land lýðræðis - gegnsæis. Áhersla á góða menntun, atvinnu fyrir alla og virka þátttöku í alþjóðasamfélagi. Sjálfbærri nýtingu en virðingu fyrir náttúrunni</setning>
	<setning id="9334">Við viljum að íslenskt samfélag byggi á samfélagslegri ábyrgð og velferð fjölskyldunnar, sé náttúruvænt, sjálfbært og virðing borin fyrir reynslu</setning>
	<setning id="9276">Sjálfbært þjóðfélag með jöfn tækifæri og gegnsægri stjórnsýslu, þar sem hæfileikar allar fá að njóta sín í menntun og nýsköpun og náttúruauðlindir eru nýttar á skynsaman hátt</setning>
	<setning id="9222">Á Íslandi ríkir stöðugleiki í efnahagsmálum, einstaklingar eru meðvitaðir um ábyrgð sína og skyldur og auði og auðlindum þjóðarinnar deilt með sanngjörnum hætti</setning>
	<setning id="9153">Við viljum hafa fjölbreytta menntun fyrir alla, að við skilum landinu í betra ástandi til framtíðar og þekkjum og metum styrkleika og veikleika landsog þjóðar</setning>
	<setning id="9101">Framsækið, skapandi og mannvænt samfélag, byggt á menntun, fjölbreyttu atvinnulífi og hreinu umhverfi sem grundvallast á tjáningafrelsi og jafnrétti</setning>
	<setning id="7973">Stjórnsýsla á að verða skilvirk og gagnsæ. Fyrirgreiðslupólitík tilheyri sögunni. Heilsufrelsi. Sterkt heilbrigðiskerfi m.forvarnir og fræðslu að leiðarljósi,óháð efnahag. Fjölbreytt opin menntun við allra hæfi óháð efnahag.</setning>
	<setning id="7867">Við erum sjálfstæð lífsglöð þjóð sem byggir á þekkingu, fjölbreyttri menningu, ber virðingu fyrir og verndar íslenska náttúru,eigum heilbrigðisþjónustu á heimsvísu og erum fyrirmynd menntunar í heiminum.</setning>
	<setning id="7858">Með jákvæðu viðhorfi mun Ísland verða leiðandi í umhverfis-, heilbrigðis- og atvinnumálum. Íslendingar standi vörð um sínar auðlindir.</setning>
	<setning id="7845">Samfélag þar sem þjóðvernd, virðing og félagsleg gildi eru höfð að leiðarljósi, með menntun fyrir alla og börnin í fyrirrúmi.</setning>
	<setning id="7844">Velferðarþjóðfélag sem byggir á jafnrétti og frelsi til athafna og vinnu, þar sem fjölskyldan er hornsteinn og kjölfesta samfélagsins.</setning>
	<setning id="7839">Ísland verði vistvænt samfélag sem byggir á gagnsærri stjórnsýslu með bættum lífsgæðum sem einkennast af minna kapphlaupi og atvinnu fyrir alla.</setning>
	<setning id="7829">Til að réttlát lífskjör náist fyrir framtíðar kynslóðir þarf að greiða ICESAVE skuldbindingar úr lífeyrissjóðum landsmanna strax og samhliða kjósa einstaklinga í stað flokka til forystu.</setning>
	<setning id="7825">Lítið kröftugt land velferðar og tækifæra án eiturlyfja með öflugt atvinnulíf og lága skatta sem byggir á öflugu menntakerfi, virðingu fyrir náttúrunni og virku eftirliti.</setning>
	<setning id="7823">Kærleiksríkt og hamingjusamt samfélag þar sem allir hafa sömu tækifæri og gæði landsins og mannauður eru nýtt á sjálfbæran hátt.</setning>
	<setning id="7820">Velferðarsamfélag þar sem fjölskyldan og náttúran eru í fyrirrúmi. Allir hafi jafnan aðgang að þekkingu, náttúruauðlindum og hamingju.</setning>
	<setning id="7818">Alþjóðleg og opið nýsköpunarsamfélag með ríka samfélags- og umhverfisvitund og áherslu á ómengað umhverfi og efnahagslega velferð.</setning>
	<setning id="7816">Fjölskylduvænt og skapandi samfélag sem byggir á atvinnnuuöryggi og heilbrigði, þar sem virðing er borin fyrir náttúru og menningu,</setning>
	<setning id="7814">Við viljum að ísland verði frjálst, opið, framsækið og réttlátt þjóðfélag sem tryggir öllum atvinnu, treystir á jöfnuð, umburðalyndi og leggur áherslu á gildi fjölskyldunnar, einkum börnin.</setning>
	<setning id="7810">Fjölskylduvænt samfélag sem styður dreifða búsetu, byggir á góðri siðferðisvitund og býður þegnum upp á frítt heilbrigðis- og menntakerfi</setning>
	<setning id="7809">Sjálfbært, opið og heiðarlegt velferðarþjóðfélag með styrka stjórnsýslu þar sem auðlindir eru nýttar í sátt við umhverfið og í eigu þjóðarinnar.</setning>
	<setning id="7804">Ísland framtíðarinnar er sjálfstætt, fjölskylduvænt og umhyggjusamt samfélag þar sem atvinna er fyrir alla og sjálfsvirðing og sjálfbærni er í fyrirrúmi.</setning>
	<setning id="7801">Ísland er (verður) vel menntað velverðarþjóðfélag með réttlátri tekjuskiptingu þar sem fjölbreytt atvinnulíf blómstrar og almenn virðing ríkir meðal þegnanna.</setning>
	<setning id="7800">Eftir uppstokkun stjórnkerfisins kemur litríkt, opið mannúðarsamfélag sem leggur höfuðáherslu á menntun og umhverfismál með hófsama nýtingar auðlinda að leiðarljósi.</setning>
	<setning id="7798">sjálfstæð lýðræðisþjóð með réttlæti, samheldni, kærleika og gagnsæi að leiðarljósi. Sjálfbærni og jafnvægi ríki í nýtingu auðlinda landsins.</setning>
	<setning id="7797">Ísland er gegnsætt lýðræðisríki, þar sem menntun, öflugt og fjölbreytt atvinnulíf og sjálfbær og skynsamleg nýting auðlinda eru grundvöllur vistvæns velferðarsamfélags</setning>
	<setning id="7796">Fjölskylduvænt samfélag sem ber virðingu fyrir náttúrunni, tryggir fólki aðstöðu og tækifæri til að rækta sjáft sig er heilbrigt samfélag.</setning>
	<setning id="7795">Sjálfstæð, vel menntuð og frjáls þjóð í hreinu landi með full yfirráð yfir auðlindum þar sem lögð er áhersla á virðingu og fullvinnslu afurða</setning>
	<setning id="7794">Framtíðar Ísland er þekkingarsamfélag með verðmæta skapandi og fjölbreyttu atvinnulífi, þar sem velferð og öryggi fjölskyldunnar er í fyrirrúmi.</setning>
	<setning id="7793">Sjálfstæð og samheldin þjóð sem byggir á gagnkvæmri virðingu og hefur velferð, náttúruvernd, sjálfbærni og stöðugleika að leiðarljósi.</setning>
	<setning id="7792">Allir hafi sömu möguleika til menntunar og atvinnu óháð efnahag og kyni, með því að stjórnsýsla eflist, lýðræði aukist og sjáflbærni verði höfð að leiðarljósi.</setning>
	<setning id="7791">Byggja grunngildi samfélagsins á gullnu reglunni, efla jafnræði milli landshluta, stétta og hópa, nýta náttúruauðlindir af skynsemi virðingu og hófsemd.</setning>
	<setning id="7790">Sjálfstæð vel menntuð þjóð með ríka samfélagslega ábyrgð, með börn sín í forgrunni og nýtur virðingar meðal þjóða</setning>
	<setning id="7789">Ísland í forystu varðandi græna orku og samfélag þar sem fjölskyldan er í fyrirrúmi. Allir njóti jafnréttis og eigi bæði kost á atvinnu- og heilbrigðisþjónustu.</setning>
	<setning id="7788">Ábyrg og heiðarleg stjórnmál byggð á jafnrétti, bjartsýni og virðingu fyrir náttúrunni skapar sjálfstætt Ísland.</setning>
	<setning id="7787">Barnvænt, öruggt og gegnsætt samfélag upplýstra einstaklinga þar sem allir hafa jöfn tækifæri</setning>
	<setning id="7786">Velferðasamfélag sem er þátttakandi í alþjóðasamfélagi og með sjálfbærum hætti nýtir auðlindir þjóðarinnar sem haldast í þjóðreign</setning>
	<setning id="7785">Allir eigi jafnan kost á menntun, atvinnutækifærum og heilbrigðisþjónustu í landi hreinnar orku og umhverfisverndar.</setning>
	<setning id="7784">Ísland er gegnsætt lýðræðisríki, þar sem menntun, öflugt og fjölbreytt atvinnulíf og sjálfbær og skynsamleg nýting auðlinda eru grundvöllur vistvæns velferðarsamfélags</setning>
	<setning id="7783">Lýðræðislegt sjálfbært Ísland með góða menntun og heilbrigðisþjónustu fyrir alla.</setning>
	<setning id="7780">Réttlátt og fjölskylduvænt samfélag með faglegum vinnubrögðum án spillingar og réttláta nýtingu auðlinda og vinnu fyrir alla</setning>
	<setning id="7779">Við erum vel menntuð þjóð sem leggur áherslu á öfluga atvinnusköpun í sátt við umhverfi og samfélag til að tryggja lífskjör sem standast samanburð við það besta sem gerist í heiminum.</setning>
	<setning id="7778">Skapandi, sjálfbært og hófsamt samfélag, ábyrgt meðal þjóða, með nýja stjórnarskrá þar sem hagsmunir heildarinnar ráða för og mannréttindi eru sett í öndvegi.</setning>
	<setning id="7777">Sjálfstæð og skapandi þjóð sem ber virðingu fyrir umhverfinu, lærir af mistökum annarra þjóða og skapar þannig þjóð velferðar og hagsældar</setning>
	<setning id="7776">Að Ísland verði sjálfbært land jafnra tækifæra og fyrirmynd annarra þjóða þar sem gagnrýnin hugsun, frelsi og lýðræði verði haft að leiðarljósi í sátt við náttúrna.</setning>
	<setning id="7775">Ísland er land jafnréttis og fjölskylduvæns atvinnulífs sem nýtir innlenda orkugjafa án þess að ganga á náttúru landsins. Ísland á í góðum og faglegum samskiptum við umheiminn.</setning>
	<setning id="7774">Ísland verði sjálfbært land með hreina náttúru, auðlindir í þjóðareign. Atvinnulíf fjölbreytt, jafn aðgangur að góðu velferðarkerfi og virðing borin fyrir menningar arfinum</setning>
	<setning id="7773">Sjálfbært alþjóðavænt samfélag þar sem fólk kýs að búa, hefur jöfn tækifæri til athafna og finnur kraftinum sjálfbæran farveg.</setning>
	<setning id="7772">Sjálfstæð þjóð í frjálsu landi í gegnsæju samfélagi reistu á hugsun, lýðræðisfrelsis og jafnréttis þar sem auðlindir verða nýttar á ábyrgan hátt í þágu þjóðarinnar með rækt við menningu, sögu og tungu</setning>
	<setning id="7771">Þjóðin verði alin upp til ábyrgðar og mennntunar í samskiptum við innlenda og erlenda menn, gæti sjálfsstæðis síns og fjármuna.</setning>
	<setning id="7768">Réttlátt samfélag, þar sem allir taka þátt, njóta góðrar menntunar, fjölbreyttrar atvinnu og heilbrigðis í landi sem ber virðingu fyrir eigin náttúru.</setning>
	<setning id="7767">Upplýst og gegnsætt lýðræðissamfélag með öflugt og fjölbreytt atvinnulíf með áherslu á jafnrétti, mannauð og aðrar auðlindir.</setning>
	<setning id="7765">Ísland er efnahagslega sjálfstætt land, þar sem lögð er áhersla á sjálfbæra framleiðslu matvæla, opna og gagnsæa stjórnsýslu með menntun og fjölskyldugildi eru í fyrirrúmi</setning>
	<setning id="7763">Auðlindir í þjóðareign þar sem gætt er sjálfbærni, réttsýni í samskiptum þar sem verðleikar einstaklingsins fá að njóta sín. Heilstæð sýn á byggðaþróun á landsvísu með áherslu á smærri og sjálfbærari einingar, sérstaklega í Reykjavík</setning>
	<setning id="7761">Sjálfbært þjóðfélag byggt á menntun og heilbrigði, í boði fyrir alla, til að stuðla að virkri atvinnuuppbyggingu, umhverfisvernd og mannvirkjun.</setning>
	<setning id="7760">Við viljum sjálfbært, vel menntað samfélag með fjölskylduna í fyrirrúmi og áherslu á nýtingu auðlinda í þjóðarþágu, og virðingu fyrir náttúrunni.</setning>
	<setning id="7758">Ísland er réttlátt samfélag sem byggir á jöfnuði og jafnréti, þar ríkir náttúruvitund, auðlindir eru í eigu þjóðarinnar og nýsköpun í forgrunni</setning>
	<setning id="7756">Fjölskyldu- og barnvænt, sjálfbært samfélag með jöfnum rétti til menntunar, óháð fjárhag og samfélagsstöðu og stjórnkerfi með skýrum leikreglum og gagnsæi</setning>
	<setning id="7755">Ísland framtíðarinnar er lýðveldi byggt af frjálsri þjóð, með sjálfbært atvinnulíf. þar sem öryggi. réttlæti og jöfn skipting er í fyrirrúmi</setning>
	<setning id="7753">Ísland verði virkt lýðræðisríki í einu kjördæmi með beinni þátttöku þjóðarinnar. Nýting auðlinda verði sjálfbæær og þær verði eign þjóðarinnar. Velferð og jöfnuður verði grundvallar mannréttindi allra Íslendinga</setning>
	<setning id="7752">Að Ísland verði fyrirmyndarríki í umhverfis-, mannréttinda- og friðarmálum, þar sem allir hafa jafnan aðgang að menntun og heilsugæslu.</setning>
	<setning id="7751">Lýðræðislegt, heiðarlegt, gagnsætt og réttlátt þjóðfélag þar sem fólk ber ábyrgð á gjörðum sínum. Fjölskyldan er í fyrirrúmi og áhersla er lögð á menntun og nýsköpun.</setning>
	<setning id="7748">Allri þegnar hafi jafnan rétt til að taka þátt í að móta ábyrgt samfélag til að nýta og byggja á samfélaglegum sem og náttúrulegum auðlindum.</setning>
	<setning id="7746">Þjóðfélag þar sem ríkir efnahagslegur stöðugleiki, sem byggir á öflugu menntakerfi, nýsköpun og frumkvæði einstaklingsins í sátt við náttúruna.</setning>
	<setning id="7744">Vel upplýst og menntað samfélag sem byggir á verndun náttúru og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Þar ríkir virkt og raunverulegt líðræði og borin er umhyggja fyrir einstaklingum landsins.</setning>
	<setning id="7742">Öflugt velferðarsamfélag sem byggir á virðingu fyrir manni og náttúru, gegnsærri stjórnsýslu, öflugu atvinnulífi og tryggir þjónustu við unga sem aldna</setning>
	<setning id="7740">Velferðarsamfélag sem byggir á sjálfbærri þróun, menntun og gegnsærri stjórnsýslu.</setning>
	<setning id="7739">Við viljum upplýst siðað samfélag þar sem rödd allra heyrst og náttúra og mannlíf blómstra</setning>
	<setning id="7738">Siðferðislega upplýst, sjálfstætt lýðræðissamfélag þar sem hugvit og menntun stýrir atvinnustefnu fólks sem býr við gott heilbrigðiskerfi og auðvelda fjármögnun húsnæðis</setning>
	<setning id="7735">Framtíðar Ísland er þjóðfélag sem byggir á góðum efnahagi og réttlæti, skynsamlegri nýtingu náttúruauðlinda, fjölbreyttum atvinnutækifærum og jöfnuði til náms.</setning>
	<setning id="7733">Við erum sammála um mikilvægi þess að hjól atvinnulífsins snúist í sátt við umhverfissjónarmið svo halda megi uppi öflugu mennta- og heilbrigðiskerfi.</setning>
	<setning id="7732">Byggjum upp öflugt, réttlátt samfélag; endurskoðum stjórnsýslu m.t.t. aukins gegnsæis, jafnræðis og heiðarleika: eflum stoðir atvinnulífsins með fjárfestingu í fjölbreyttri menntun og nýsköpun</setning>
	<setning id="7727">Framtíðarsýn íslands er að lífsgildi þjóðarinnar byggist á jákvæðu viðhorfi, öflugum og sjálfbæru atvinnulífi og einföldu stjórnkerfi sem byggir á jafnræði þegnanna.</setning>
	<setning id="7725">Íslenskt samfélag leggi áherslu á sjálfbærni í atvinnulífi, s.s. matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu, heilbrigðis- og menntamálum, umhverfis- og orkumálum með fjölbreytileika og lýðræði að leiðarljósi.</setning>
	<setning id="7722">Ísland verði sterkt lýðræðisríki sem byggir á jafnrétti og styrkum grunnstoðum svo sem heilbrigðisþjónustu, almennri velferð og velmegun.</setning>
	<setning id="7720">Með réttlátri og gagnsærri stjórnsýslu byggjum við samfélag jafnaðar með fjölbreyttu og traustu atvinnulífi, verndum náttúruna og nýtum hana skynsamlega.</setning>
	<setning id="7718">Vel menntuð þjóð í skapandi og fjölbreytilegum störfum sem veita einstaklingum trausta afkomu og svigrúm til að sinna uppeldi og velferð fjölskyldu.</setning>
	<setning id="7717">Nýtum og varðveitum náttúru, orku og auðlindir Íslands í þágu þjóðarinnar og höfum jafnrétti, fjölskyldu og börnin í forgangi</setning>
	<setning id="7716">Við sjáum fyrir okkur sjálfbæra og vel menntaða þjóð þar sem stjornskipulag trygggir virðingu, jafnrétti og velferð í víðum skilningi.</setning>
	<setning id="7715">Jákvætt, fjölskylduvænt þjóðfélag með trausta, fjölbreytta atvinnu- og menntastefnu þar sem fólk sofnar brosandi og vaknar hlæjandi.</setning>
	<setning id="7712">Öflugar grunnstoðir og menntun, einstaklingsmiðuð, án mötunar. Áhersla á vernd umhverfis. Ísland skuldlaust með fjölbreyrru atvinnulífi og dreyfðri áhættu.</setning>
	<setning id="7711">Ísland sé öruggt samfélag með styrkar grunnstoðir sem byggja á frelsi til jákvæðra athafna, með gott stjórnarfar og öflugan menningararf.</setning>
	<setning id="7710">Ímynd Íslands endurspegli sjálfbærni, fjölbreytni í lífi og starfi, gefi einstaklingum möguleika á að njóta dugnaðar og að allar auðlindir Íslendinga séu í eigu íslensku þjóðarinnar.</setning>
	<setning id="7709">upplýst þjóðfélag með fjölskylduvænum lífsviðhorfum og lýðræði þar sem menntun við hæfi allra er aðgengileg, atvinnulíf fjölbreytt og fjölmiðlun réttlát</setning>
	<setning id="7708">ísland er land jafnra tækifæra sem grundvallast á ábyrgð, réttlæti, jákvæðri orku í samfélaginu og virðingu fyrir náttúrunni</setning>
	<setning id="7706">Við viljum gott heilbrigðiskerfi og fjölbreytta menntun sem er opið fyrir alla og leiðir til sterks atvinnulífs. Jafnframt að varðveita sögu og menntun þjóðarinnar.</setning>
	<setning id="7705">Við viljum réttarríki, allir eru jafnir fyrir lögum, umsvif ríkisins eru lítil. Þjóðin verndar og metur náttúrugæði og gætir lítilmagnans.</setning>
	<setning id="7703">Samfélag sem byggir á virku lýðræði, öryggi og velferð fyrir alla, sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda og virkri þátttöku í alþjóðasamstarfi</setning>
	<setning id="7702">Öflugt og fjölbreyt atvinnulíf byggt á góðu menntakerfi sem skapar traustan efnahag og myndar þannig umgjörð að lífvænlegu og mannvænu samfélagi</setning>
	<setning id="7700">Ísland er réttlátt velferðarsamfélag, með fjölskyldu og einstaklinginn í fyrirrúmi byggt á náungakærleik og virðingu fyrir náttúru og auðlindum.</setning>
	<setning id="7697">Sjálfstætt velferðarsamfélag án hernaðarþátttöku, ókeypis heilbrigðisþjónustu, góða samfélagsvitund, lýðræðislega stjórnsýslu með áherslu á umhverfis- og náttúruvernd. Þar sem fólk hefur tíma með fjölskyldunni.</setning>
	<setning id="7695">Ísland sé sjálfstætt velferðarríki sem byggir á jöfnuði. Þar er heiðarleiki og gegnsæi ríkjandi og auðlindir eru í almannaeigu.</setning>
	<setning id="7694">Siðferðislega öflugt mannlíf byggt á þekkingu, gagnrýni, víðsýni og fordómalausri hugsun mótað af báðum kynjum sem einblínir á hagnýta menntun og raunverulegan auð</setning>
	<setning id="7692">Framtíðarsýn okkar er samfélag sem býður upp á tækifæri fyirr alla, tjaldar ekki til einnar nætur, tekur tillit til réttinda og skyldna og leggur áherslu á fjölskyldu og heilbrigði.</setning>
	<setning id="7691">Á Íslandi framtíðarinnar ríkir efnahagslegur stöðuleiki með mannsæmandi launum og þar er fjölskylduvænt samfélag. Landið er án pólitískrar spillingar, leikreglur eru virtar og borin virðing fyrir náttúrulegu umhverfi.</setning>
	<setning id="7689">Ísland er samfélag sem örvar borgara sína til nýsköpunar og heilsueflingar og ber virðingu fyrir umhverfi og þjóðfélagi.</setning>
	<setning id="7686">Við búum í landi þar sem öflugt menntakerfi stuðlar að skapandi lýðræðislegu samfélagi sem gætir að auðlindum sínum og virðir mannréttindi</setning>
	<setning id="7687">Við viljum: -tryggja sjálfstæði þjóðarinnar með efnahagslegum stöðugleika, -verðleika samfélag í stað klíku samfélags, -sjálfbært atvinnulif með jafnara raforkuverði til atvinnugreina</setning>
	<setning id="7683">Við viljum sjá barnvænt samfélag sem byggist á virðingu fyrir mannréttindum, Þar sem friður og öryggi eru í fyrirrúmi. Allir njóti jafnra tækifæra til menntunar og atvinnu. Þjóðin njóti góðrar heilbrigðisþjónustu á tillits til efnahags einstaklinga.</setning>
	<setning id="7680">Á Íslandi ríkir réttlæti.  Hlúð er að fjölskyldu og foreldrahlutverk metið mikils.  Ríkuleg áhersla er lögð á heilsu þjóðar og rétt til menntunar</setning>
	<setning id="7679">Framtíðin einkennist af öflugu velferðarkerfi, fjölbreyttu atvinnulífi, virku lýðræði og heiðarleika.  Staðinn er vörður um náttúru, menningu, tungu og kærleiksrík og siðleg gildi.</setning>
	<setning id="7678">Hamingja heildarinnar er leiðarljós að mannúðlegu samfélagi sem byggir á jafnrétti og lýðræði og styður við menntun og nýsköpun</setning>
	<setning id="7677">Menntað samfélag með öflugu skólakerfi fyrir alla, nægri atvinnu þar sem jöfnuður og jafnrétti er virt, fordæmum græðgi og sérhyggju.</setning>
	<setning id="7675">Réttlátt og gagnsætt samfélag, án fátæktar, þar sem virðing er borin fyrir umhverfi og náunganum. Jafn réttur allra til náms og atvinnu.</setning>
	<setning id="7674">Fjölskylduvænt samfélag sem leggur áherslu á heilbrigðiskerfi fyrir alla. Jafnrétti og menntun sem miðar að frjálsri og gagnrýnni hugsun og umgangast auðlindir að virðingu.</setning>
	<setning id="7672">heiðarlegt umhverfis- og fjölskylduvænt samfélag, þar sem öllum eru sköpuð jöfn tækifæri. Atvinnulíf, mennta- og heilbrigiðiskerfi byggja á nýsköpun, framþróun og hugviti</setning>
	<setning id="7668">Ísland verði með sterkt atvinnulíf stutt af frumkvöðlum, heiðarlegt samfélag með auðmjúkum, þverpólitísku stjórnmálamönnum og er fyrirmynd þjóða í nýtingu náttúruauðlinda </setning>
	<setning id="7666">Ísland er fyrirmynd heimsins í umhverfis- og menntunamálum og hefur einfalda og skýra stjórnsýslu</setning>
	<setning id="7660">Ísland verði sjálfstæð þjóð með hátt menntunarstig sem nýtir auðlindir sínar með sjálfbærum hætti.</setning>
	<setning id="7662">Sjálfstæð og fullvalda þjóð undir réttlátu stjórnkerfi og traustri efnahagsstjórn með áherslu á jöfn tækifæri til náms og velferðarsamfélags</setning>
	<setning id="7656">Fjölskylduvænt, hreint ísland, með fólk í fyrirrúmi og auðlindir landsins nýttar til stuðnings lífsbjörginni með umhverfissjónarmið og náttúruvernd að leiðarljósi.</setning>
	<setning id="7655">Heiðarlegt, opið, kærleiksríkt samfélag með opnu heilbrigðis- og velferðarkerfi þar sem hlúð er að jöfnuði, náttúru og uppeldi barna og ungmenna.</setning>
	<setning id="7650">Fjölskylduvænt sjálfbært ísland með áheslu á fjölbreytta atvinnustefnu, jafnrétti og neytendavernd í fjármálum einstaklinga.</setning>
	<setning id="7648">Sjálfstæð og frjáls þjóð með áherslu á fjölskylduvænt þjóðfélag, frelsi til athafna og opið faglegt stjórnkerfi.</setning>
	<setning id="7647">Móta ábyrga langtíma stefnu fyrir þjóðina, þar sem mannauður og auðlindir eru sett í öndvegi.  Stefnan skal byggja á heiðarleika, virðingu og kærleika.</setning>
	<setning id="7645">Hreint land með öflugu velferðarkerfi byggt á fjölbreyttu atvinnulífi þar sem áhersla er lögð á nýsköpun og sjálfbærni</setning>
	<setning id="7642">Við viljum þjóð með sterka siðferðiskennd sem byggir á jöfnuði,sjálfbærni í nýtingu landsins þar sem tækifærin eru nýtt til ábata komandi kynslóða.</setning>
	<setning id="7636">Ísland er skuldlaust samfélag sem samanstendur af samhentum fjölskyldum sem búa við atvinnuöryggi og lága vexti.</setning>
	<setning id="7635">Samfélag sem hefur áherslu á heilbrigðismál, menntun, góð lífskjör, er fjölskylduvænt, gefur öllum jöfn tækifæri og með einn sameiginlegan lífeyrissjóð</setning>
	<setning id="7624">Velferðarsamfélag sem stendur vörð um grunnþjónustu og jafnrétti þar sem auðlindir landsins eru þjóðareign, sjálfstætt Ísland, viturt og virt á alþjóðavettvangi</setning>
	<setning id="7620">Ábyrgt, réttlátt samfélag með jöfnum námsmöguleikum, aðgengilegu heilbrigðiskerfi og atvinnumöguleikum fyrir alla. Auðlindir í þágu þjóðar, ríki og kirkja aðskilin.</setning>
	<setning id="7616">Ísland verði alþjóðlega virt sem táknmynd friðar, umburðarlyndis og grænnar þekkingar á háu stigi. </setning>
	<setning id="7612">Virkja mannauðinn til góðra verka í óspilltu sjálfbæru samfélagi, sem einkennist af jöfnuði, fjölbreytni og framsækni.</setning>
	<setning id="7606">Við viljum að Ísland verði sjálfbært og hreint land þar sem réttlát stjórnsýsla og dómskerfi ríkir, jafnrétti og mannréttindi eru höfð að leiðarljósi og allir hafi rétt á góðu heilbrigðis- og menntakerfi</setning>
	<setning id="7605">Hópurinn sér Ísland sem leiðandi í jafnréttismálum, fjölskyldumálum og fjölbreyttri atvinnu fyrir alla með öflugu dóms- og heilbrigðiskerfi</setning>
	<setning id="7602">Ísland re land tækifæra með öflugt öryggisnet og traust velferðarkerfi, þar sem fjölskyldan er hornsteinn samfélagsins og heilbrigð gildi berast milli kynslóða</setning>
	<setning id="7601">Lýðræðislegt samfélag, byggt á jafnréttishugsjón, með tryggu heilbrigðiskerfi fyrir alla, jöfnum tækifærum til menntunar og með sjálfbærri nýtingu hreinnar orku.</setning>
	<setning id="7590">Ísland verði sjálfbært velferðarsamfélag með sömu tækifæri fyrir alla þar sem heiðarleiki og réttlæti eru höfð að leiðarljósi.</setning>
	<setning id="7586">Umhverfisvænt samfélag með jöfnum tækifærum fyrir alla, jöfnu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og skynsamlegri nýtingu auðlinda með framtíðarkynslóðir að leiðarljósi.</setning>
	<setning id="7579">Náttúruauðlindir í eigu íslensku þjóðarinnar nýttar á sjálfbæran hátt, atvinna fyrir alla, velferð, jafnrétti og jöfn skipting lífsgæða</setning>
	<setning id="7573">Sjálfstætt og fullvalda ríki þar sem allir hafa jöfn tækifæri, nýting auðlinda er umhverfisvæn og stðinn er vörður um verlferðarsamfélagið.</setning>
	<setning id="7570">Við stefnum að sjálfbæru þjóðfélagi sem hefur að leiðarljósi velferð þegnanna, jafnrétti til heilbrigðisþjónustu, þar sem stuðningur við nýsköpun verði aukinn með áherlsu á atvinnu og efnahagsmál</setning>
	<setning id="7566">Virkt lýðræði með áherslu á velferð allra. Hvetjandi menntun, sem tekur mið af fjölbreytileika og mismundandi þörfum einstaklinga.</setning>
	<setning id="7562">Ísland verði samfélag þar sem stjórnsýsla byggir á gagnsæi, tækifæri ríkja til atvinnusköpunar og siðferðisleg ábyrgð er höfð að leiðarljósi</setning>
	<setning id="7561">Fjölskylduvænt samfélag með fjölbreyttu atvnnulífi og greiðum aðgangi að lýðræðinu.</setning>
	<setning id="7556">Frjálst og umhverfisvænt samfélag þar sem allir eiga sama rétt til náms</setning>
	<setning id="7552">Íslenskt samfélag verði í fremstu röð í sjálfbærri þróun, eflingu lýðræðis og virðingar fyrir land og þjóð.</setning>
	<setning id="7549">Réttlátt stjórnkerfi sem byggir á sjálfbærri nýtingu auðlinda, stendur vörð um fjölskylduna og tryggir jafnan rétt til náms óháð efnahag</setning>
	<setning id="7546">Landið byggi á mennta- og heilbrigðiskerfi fyrir alla, laust við spillingu valdsins og auðlindir í þjóðareign.</setning>
	<setning id="7537">Umhverfisvænt þróunarsamfélag þar sem réttlæti og velferð fjölskyldna eru í fyrirrúmi og náttúruauðlindir eru í þjóðareign</setning>
	<setning id="7530">Ísland verði ávallt sjálfstæð þjóð með fjölskyldur og fólk í fyrirrúmi sem byggir atvinnulíf á endurnýtingu auðlinda sem þekkingarþjóðfélag</setning>
	<setning id="7527">Við viljum samfélag þar sem fjölskyldan er í fyrirrúmi, þar sem ríkir jafnrétti í aðgengi að atvinnu og framúrskarandi menntunarkerfi.</setning>
	<setning id="7522">Við viljum búa í öruggu og frjálsu landi í góðu samfélagi þjóða. Auðlindirnar í okkar eigu þar sem velferð og atvinna er öllum tryggð.</setning>
	<setning id="7521">Hreint land sem byggir á endurnýtanlegri orku þar sem ríkir jafnræði, gagnsæi og virðing fyrir fólki, lögum og landi</setning>
	<setning id="7510">Samfélag með menntun og fjölbreytt atvinnulíf í öndvegi, sem skapar öllum öruggt umhverfi til að lifa, læra og njóta, og er sjálfstæður hluti alþjóðasamfélagsins</setning>
	<setning id="7500">Ísland er fjölskylduvænt samfélag með öfluga og heilbrigða siðferðisvitund þar sem fólk lifir í algjörri sátt við náttúruna</setning>
	<setning id="7496">Skynsamleg og sjálfbær nýting auðlinda í frjálslegu, kærleiksríku og vel menntuðu þjóðfélagi í landi jafnréttis og réttlætis, sem tryggir spillingarlausa stjórnsýslu</setning>
	<setning id="7494">Þjóðfélag byggt á jöfnuði með öflugu menntakerfi sem þjónar einstaklingum og atvinnulífi sem einkennist af hugmyndaauðgi og virðingu fyrir nátturunni.</setning>
	<setning id="7476">Íslendingar læri af eigin reynslu, taki ábyrgð á fortíð, nútíð og framtíð, byggi upp fjölskylduvænt, menntað og meðvitað samfélag</setning>
	<setning id="7473">Samfélag sem tekur þátt í alþjóðasamfélaginu og leggur áherslu á skilvirka heilbrigðisþjónustu, nýtingu innlendra aðlinda og styður við nýsköpun og þróun</setning>
	<setning id="7467">Réttlát samfélag í sjálfbæru landi, með öfluga félagsþjónustu og frítt skólakerfi, þjóðfélag knúið af hreinni orku</setning>
	<setning id="7455">Land jafnra tækifæra, þar sem hlúð er að fjölskyldum og sjálfbær auðlindanýting er undirstaða öflugra atvinnutækifæra </setning>
	<setning id="7444">Heiðarlegt og réttlátt verðmætaskapandi velferðarsamfélag þar sem frelsi og hæfileikar einstaklingsins njóta sín með áherslu á menntun og sköpun</setning>
	<setning id="7438">Fjölskylduvænt vel menntað þjóðfélag með jafna möguleika til menntunar og atvinnu og áherslu á ábyrga nýsköpun</setning>
	<setning id="7423">Áhersla á lýðræði, menntun og atvinnulíf gefur af sér næsta stóra hugsuð heimsins, Ísland verður vagga jákvæðni og góðra lífskjara</setning>
	<setning id="7422">heilsulandið Ísland verður gagnsætt og heiðarlegt velferðarsamfélag, með áherslu á nýsköpun, menntun og menningu</setning>
	<setning id="7397">virkt, heiðarlegt lýðræðisríki með fyrirmyndar stjórnskipun, menntun, heilsueflingu og nýtingu náttúruauðlinda þar sem einstaklingurinn fær notið sín</setning>
	<setning id="7389">Víðsýnt gagnsætt mannréttindaland þar sem þroski einstaklingsins er í fyrirrúmi, menntun, menning og skapandi hugsun </setning>
	<setning id="7368">sjálfbærni,réttlæti, vel menntað og upplýst samfélag með sterkum leikreglum þar sem atvinna er næg og búið vel að börnum</setning>
</framtidarsyn>
